
Leiðin Heim
Lífsráðgjöf og samtal fyrir skírleika, ró og stefnu.

Skrifaðu þína framtíð
Einblíndu á það sem er mikilvægast
fyrir ÞIG
Gerðu jákvæðar breytingar til að tryggja þér meira FRELSI og HAMINGJU
Finndu tilfinninguna innra með þér sem býr til DRIFKRAFTINN og lætur ÁSTRÍÐUNA helga LÍF ÞITT

Hvað skiptir þig máli?
Lærðu að bregðast við hugsunum og tilfinningum á nýjan hátt
Forgangsraðaðu
Gerðu það sem skiptir þig máli
![20200910_141629[1145].jpg](https://static.wixstatic.com/media/1a6455_837b3b7bfadc4affbb43a93361e9771d~mv2.jpg/v1/fill/w_290,h_377,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,enc_avif,quality_auto/20200910_141629%5B1145%5D.jpg)
Hver er Bjarki?
Mannvinur sem veitir þér lífsráðgjöf undir fullu trausti, mannúð og visku.


Sigga Lund,
Fjölmiðlakona
Að fara í tíma til Bjarka er eins og að fara í góðan sálfræðitíma, nema það er svo miklu, miklu meira en það. Ég leita til hans þegar ég finn fyrir ójafnvægi hvort sem er í orkunni minni, andanum, tilfinningum eða í lífinu sjálfu og þá sér í lagi þegar ég finn að ég er ekki að ná að greiða úr hlutunum sjálf. Án undantekninga beinir hann mér inn á beinu brautina.
Bjarki stillir mann eins og gítarleikari stillir gítarinn sinn, með svo mikilli nærgætni og yfirvegun. Hann veit upp á hár hvað hann er að gera. Hann hjálpar manni að sjá hlutina í réttu ljósi. Eftir hvern tíma fer ég heim í jafnvægi, ég finn frið og mér líður vel.
Ég mæli hiklaust með þjónustu Bjarka og í raun hvet alla til að prófa.


Steinarr Lár,
Stofnandi Kuku Campers
Go Campers - Go Car Rental
Bjarki er stórkostlegur ráðgjafi. Ég var svo heppinn að kynnast Bjarka sem ráðgjafa á stórum tímamótum í mínu lífi. Ég var eins og bíll sem gekk ekki á öllum sílindrum. Gekk út eftir fyrsta tímann vel stilltur og kraftmikill. Ákvað strax að taka Leiðina heim 10 tíma á 10 vikum.
Bjarki hefur á þessum tíma fært mér auðmýkt og ró í hjartað. Breytt viðhorfum mínum til samskipta, sambanda og tilfinninga.
Þroskastökk er líklega besta leiðin til að lýsa þessu ferli sem ég af mikilli einlægni treysti mér til að mæla með fyrir sterka einstaklinga, æðstu stjórnendur fyrirtækja og aðra þá sem hafa spilað stærri leiki lífsins.





Elísabet Einarsdóttir,
fv. Framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Ölgerðinni og Íslandshótelum
Bjarki Ólafsson lífsráðgjafi er einstaklega hæfur ráðgjafi og markþjálfi.
Það sem gerir hann svo einstakan er mikil fagmennska, yfirgripsmikil þekking og hæfileikar til að miðla með fjölbreyttum hætti. Hann gefur mikið af sér, er með næmt innsæi fyrir fólki og ákaflega góða nærveru. Hann nær því vel og fljótlega að byggja upp traust og aðlaga sig að mismunandi þörfum fólks.
Ég get því heilshugar mælt með Bjarka fyrir fyrirtæki og stjórnendur sem vilja ná fókus á það mikilvæga í lífinu.


Viltu vaxa og ná lengra í lífinu?


Hjálmur Hjálmsson
Stjórnendaráðgjafi
KPMG
Við vinnum sem ráðgjafar, vinnum með og ráðleggjum fólki daginn út og daginn inn. Af hverju ættum við ekki stundum að fá ráðleggingar líka?
Þessi orð urðu til þess að ég ákvað að slá til, heyra í Bjarka og fara með algjörlega óskrifað væntingablað í fyrsta tíma. Þaðan kom ég út með myndræna framsetningu á mínum verkefnum, mínum hlutum sem ég get unnið í, mínu lífi.
Bjarki hefur sérstakt lag á því að hlusta, spyrja réttu spurninganna og teikna upp myndir af manns eigin hugsunum. Hans þægilega nærvera og einstaka innsæi fær mann til að koma aftur og aftur. Það er merki um góðan ráðgjafa.

_edited_edited.jpg)
Tómas Ragnarz
Framkvæmdastjóri
Regus
Eftir ábendingu frá félaga sem ég átti í spjalli við í Vesturbæjarlaug Reykjavikur þá batnaði mitt líf til muna.
Hann sagði mér að ég þyrfti að heyra í honum Bjarka og hann myndi leiðbeina mér við þau verkefni sem ég væri að burðast með. Þessi félagi minn reyndist sko sannspár.
Eftir að hafa átt nokkra dýrmæta vinnufundi með Bjarka fór allt að rúlla betur, bæði heima fyrir og í vinnunni.


Davíð Harðarson
Fjármálastjóri Nordic Visitor Stjórnarformaður Haga
Ég hef notið aðstoðar Bjarka síðan haustið 2014. Frá þeim tíma hefur margt tekið breytingum bæði í leik og starfi.
Bjarki hefur einstaka hæfileika til að draga fram ólík sjónarmið við úrlausn vandamála. Hann á mjög auðvelt með að setja sig inn í mismunandi aðstæður og mögulega framvindu mála.
Aðstoð hans hefur með markvissum hætti dregið fram skýra sýn á skammtíma- og langtíma markmið. Þau eru orðin sýnilegri og áþreifanlegri með mjög einfaldri nálgun, stutt og markviss samtöl sem skila miklu að teknu tilliti til tíma og kostnaðar.
Ég mun nýta mér þjónustu Bjarka um ókomna tíð.


Skrifaðu þína framtíð ..


Sara Odds,
Markþjálfi og ráðgjafi
Ef þú vilt gefa þér gjöf þá er tími með Bjarka sannarlega verðmæt stund. Gjöfin felur í sér aukna sjálfsþekkingu og lykil að betri vitund og tengingu.
Mín afstaða er sú að það er alltaf rými til að bæta sig og auka skilning sem skilar sér í skarpari hugsun og betri ákvörðunum.
Bjarki er virkilega fær í sínu starfi og get ég mælt heils hugar með honum.

Arnar Már Másson,
PCC markþjálfi
Ég kynntist Bjarka þegar ég var leiðbeinandi hans í námí í markþjálfun árið 2015.
Hæfileikar hans í virkri hlustun eru framúr-skarandi. Hann hefur gott lag á að hlusta bæði á heildarmyndina og smáatriðin. Svo setur hann þetta í samhengi þannig að hver og einn átti sig betur á sjálfum sér. Nærvera hans er sterk og djúp. Ég hef sjálfur leitað til Bjarka þegar ég hef verið á tímamótum. Þar hefur hann reynst mér vel. Hann hefur hjálpað mér að sjá tækifæri og möguleika í mótlæti. Bjarki er líka raunsær og passar vel upp á að öll djúpvinna sé í góðu samhengi við raunveruleikann.
Ef þú vilt vaxa og ná lengra í lífinu, þá er Bjarki góður ferðafélagi.

Þóra Birna Ásgeirsdóttir,
Mannauðsstjóri hjá
Elkem á Íslandi
Bjarki hefur tekið að sér markþjálfun á stjórnendum okkar og veitt ráðgjöf við að skipuleggja atburði til að efla liðsheild og samheldni.
Bjarki vinnur að því að byggja upp og efla stjórnendur og hefur hann verið haukur í horni þegar á reynir og taka þarf á erfiðum málum.

Einblíndu á það sem er mikilvægast fyrir þig


Jana María Guðmundsdóttir,
Leik-, söngkona
og handritshöfundur
Bjarki er mikilvirkur og næmur markþjálfi sem gott er að vinna með. Hann á auðvelt með að setja sig í spor annarra, hlusta og opna augu fólks fyrir nýjum nálgunum og lausnum.


Bjarki hefur glettilega gott innsæi fyrir mannlegri hegðun og líðan og ég held að það sé hans helsti styrkleiki. Það virðist sem hann sé gjarnan einu skrefi á undan og oft spyr hann nákvæmlega réttu spurninganna sem koma mér einhvern vegin á sporið. Hann hjálpar mér að sjá hvað skiptir máli þannig að ég beini kröftum mínum í rétta átt. Ennfremur er hann mjög þægilegur í samskiptum þannig að tímarnir okkar eru ánægjulegir og nærandi.

Hlédís Sigurðardóttir,
Sérfræðingur á samskiptasviði
Arion banka
Ég get fyllilega mælt með Bjarka sem markþjálfa. Hann er góður leiðbeinandi og nær á magnaðan hátt að hjálpa manni við að fá svör við því hvert maður vill stefna í lífinu. Bjarki býr yfir miklu innsæi sem er auðvitað frábær kostur fyrir markþjálfa og svo eru tímarnir hjá honum bara svo skemmtilegir og vel upp byggðir.
